Vögguvísa

Vögguvísa eftir Elías Mar kom fyrst út árið 1950 og er jafnan talin ein fyrsta Reykjavíkursagan. Bókin er einnig sú fyrsta sem gerir unglingamenningu eftirstríðsáranna að viðfangsefni sínu. Bambínó, aðalpersóna sögunnar, lifir og hrærist í fjölda- og neyslumenningu undir bandarískum áhrifum kvikmynda, tónlistar, tísku og fleira. Þá fangar verkið tíðarandann og heim unglingsins vel þar sem líkt er eftir tungutaki þeirra.

Höfundur lagðist í viðamikla rannsóknarvinnu á tungutaki reykvískra unglinga og safnaði saman helstu slangurorðum og orðasamböndum úr máli þeirra. Safnið birtist í fyrsta sinn í heilu lagi á prenti í þessari útgáfu. Bókin er gefin út í samstarfi við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO og verður í brennidepli á lestrarhátíð í október 2012.

„Sagan í sínum einfalda eðlilega búningi er alvarleg hugvekja, ekki aðeins til æskunnar í Reykjavík, heldur íslenzku þjóðarinnar allrar […] Vögguvísa á skilið að vera lesin af hverjum Íslendingi; hún er ádeila sem hittir í mark.“

Kristinn E. Andrésson, Þjóðviljinn, 7. janúar 1951.

„Kæri Bæjarpóstur. – Ég vona að enginn móðgist, þótt ég segi, að hin nýja skáldsaga Elíasar Mar, Vögguvísa, sé einn af fáum ljósum punktum í starfi hinna yngstu höfunda íslenzkra. Mér virðist að bók eins og þessi eigi það skilið að vera keypt og lesin vel af öllum bókenntaunnendum.“

Ónefndur lesandi, Þjóðviljinn, 25. janúar 1951.

Upplýsingar um útgáfu:
Útgáfa: 3. útgáfa
Form: Kilja
Síðufjöldi: 160
ISBN: 978-9935-9089-0-2
Útgáfudagur: 3. ágúst 2012